Aðalfundur Stoða hf.
Aðalfundur Stoða hf. verður haldinn föstudaginn 11. desember 2009 á skrifstofu félagsins að Hátúni 2b, Reykjavík, 2. hæð og hefst fundurinn kl. 16:00.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar um hag félagsins og starfsemi á liðnu starfsári.
2. Ársreikningur félagsins lagður fram til staðfestingar.
3. Tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með tap félagsins á reikningsárinu.
4. Tillaga um starfskjarastefnu.
5. Ákveðin þóknun til stjórnar félagsins.
6. Stjórnarkjör.
7. Kjör endurskoðenda.
8. Önnur mál.
Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa gefið kost á sér. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilisfangs, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardegi frá kl. 15:30 á fundarstað. Fundurinn verður haldinn á íslensku en ensk þýðing fundargerðar verður send erlendum hluthöfum innan viku frá fundinum.
Reykjavík, 4. desember 2009.
Stjórn Stoða hf.