Niðurstöður hluthafafundar þann 30. apríl 2009
Þann 30. apríl 2009 var hluthafafundur Stoða haldinn. Handhafar 78,58% hlutafjár félagsins voru viðstaddir fundinn. Allar tillögur stjórnar Stoða sem bornar voru fram á fundinum voru samþykktar.
1. Endurskipulagning á fjármálum félagsins
Tillaga um að hluthafafundur gefi stjórn félagsins heimild til að halda áfram með fjárhagslega
endurskipulagningu félagsins samkvæmt áætlun.
Tillagan var samþykkt.
2. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins
a. Tillaga um að breyta nafni félagsins í Stoðir hf. Tillagan felur í sér breytingar á 1. grein í samþykktum félagsins.
b. Tillaga um að breyta heimilisfangi félagsins. Tillagan felur í sér breytingar á 2. grein í samþykktum félagsins.
c. Tillaga um að lækka hlutafé félagsins að fullu og auka það síðan í hið lögbundna lágmark, 4.000.000 króna.
Tillagan felur í sér breytingar á 4. grein í samþykktum félagsins.
d. Tillaga um að afturkalla heimild stjórnar félagsins til útgáfu nýs hlutafjár.
Tillagan felur í sér breytingar á 4. grein í samþykktum félagsins
e. Tillaga um að breyta reglum um hvernig boða skuli til hluthafafundar.
Tillagan felur í sér breytingar á 8. grein í samþykktum félagsins, nánar tiltekið á undirkafla
sem nefnist „Fundarboðun“.
f. Tillaga um að aðalfund skuli halda fyrir lok ágústmánaðar á hverju ári.
Tillagan felur í sér breytingar á 9. grein í samþykktum félagsins.
g. Tillaga um að breyta samþykktum félagsins á þann hátt að kaflaheiti og undirkaflar verði númeraðir.
Allar tillögur stjórnar voru samþykktar.