Hluthafafundur þann 30. apríl 2009
Stjórn Stoða boðar hér með til hluthafafundar sem haldinn verður fimmtudaginn 30. apríl kl. 17:00 í höfuðstöðvum félagsins að Hátúni 2b, 105 Reykjavík, á annarri hæð
Dagskrá:
1. Tillaga um að hluthafafundur gefi stjórn félagsins heimild til að halda áfram með fjárhagslega endurskipulagningu félagsins samkvæmt áætlun
2. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins:
a. Tillaga um að breyta nafni félagsins í Stoðir hf. Tillagan felur í sér breytingar á 1. grein í samþykktum félagsins.
b. Tillaga um að breyta heimilisfangi félagsins. Tillagan felur í sér breytingar á 2. grein í samþykktum félagsins.
c. Tillaga um að lækka hlutafé félagsins að fullu og auka það síðan í hið lögbundna lágmark, 4.000.000 króna. Tillagan felur í sér breytingar á 4. grein í samþykktum félagsins.
d. Tillaga um að afturkalla heimild stjórnar félagsins til útgáfu nýs hlutafjár. Tillagan felur í sér breytingar á 4. grein í samþykktum félagsins
e. Tillaga um að breyta reglum um hvernig boða skuli til hluthafafundar. Tillagan felur í sér breytingar á 8. grein í samþykktum félagsins, nánar tiltekið á undirkafla sem nefnist „Fundarboðun“.
f. Tillaga um að aðalfund skuli halda fyrir lok ágústmánaðar á hverju ári. Tillagan felur í sér breytingar á 9. grein í samþykktum félagsins.
g. Tillaga um að breyta samþykktum félagsins á þann hátt að kaflaheiti og undirkaflar verði númeraðir.
3. Önnur mál
Hluthafar geta greitt tillögunum atkvæði skriflega. Atkvæðaseðlar verða aðgengilegir á skrifstofu félagsins frá og með föstudeginum 24. apríl 2009. Hægt er að greiða atkvæði á skrifstofunni. Hluthafar sem óska þess að fá heimsenda atkvæðaseðla verða að bera fram ósk sína til félagsins fyrir 24. apríl 2009. Skila skal atkvæðaseðlum á skrifstofu félagsins eigi síðar en miðvikudaginn 29. apríl 2009 kl. 16:00 en einnig er hægt að afhenda þá á hluthafafundinum sjálfum. Einungis eru gild atkvæði þeirra sem skráðir eru hluthafar í félaginu samkvæmt hluthafaskrá á þeim tíma.
Upplýsingar fyrir fundinn, þar á meðal tillögur stjórnar og greinargerð verða aðgengileg á skrifstofu félagsins frá og með fimmtudeginum 23. apríl 2009 og verða þær upplýsingar sendar til þeirra hluthafa sem svo kjósa.
Reykjavík, 22 apríl 2009
Stjórn Stoða (FL GROUP hf. )