29.09.2008
Stoðir fá heimild til greiðslustöðvunar
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur veitt Stoðum heimild til greiðslustöðvunar til 20. október 2008. Jakob R. Möller hrl., Logos lögmannsþjónustu hefur verið skipaður umsjónarmaður.
Hætt hefur verið við hluthafafund félagsins sem halda átti á morgun, 30. september 2008 vegna þessa.