Stoðir keyptu hlut í Refresco, hollenska drykkjarvöruframleiðandum, árið 2006, en Stoðir eiga nú 40,3% hlutafjár í félaginu. Frá árinu 2006 hafa Stoðir stutt árangursríka vaxtarstefnu Refresco, sem byggir á innri vexti samhliða yfirtökum á drykkjarvöruframleiðendum á skilgreindum sóknarmörkuðum í Evrópu.  Refresco er nú stærsti framleiðandinn á sérmerktum (“private-label”) drykkjarvörum í Evrópu, gosdrykkjum og ávaxtasöfum.

Velta Refresco árið 2009 nam um 1,14 milljarði evra, yfir 200 milljörðum íslenskra króna. Hjá Refresco starfa um 2.300 manns í 19 verksmiðjum í 8 Evrópulöndum. Forstjóri Refresco er Hans Roelofs.

.

Byggir á LiSA CMS. Eskill - LiSA, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi